Vöruleit:


Fyrirtækið
Mikið vöruval - víðtæk þjónusta

K. Richter hf. var stofnað árið 1970. K. Richter hf. er einn stærsti seljandi hér á landi á hvers kyns þéttilistum fyrir húsaþéttingar bæði fyrir gler- og gluggaísetningar, hurðaþéttingar, þakþéttingar ofl. Einnig selur fyrirtækið mikið úrval af eldvarnarþéttingum. K. Richter hf. veitir viðskiptavinum sínum sérfræðiráðgjöf á sviði þéttinga. Fyrirtækið er einnig leiðandi seljandi á sviði verkfæra og fylgihluta fyrir byggingariðnaðinn, jafnt trésmiði, múrara og málara. Aðrir stórir vöruflokkar eru vinnuvettlingar, garðverkfæri, skóflur, búsáhöld, hreinlætisverkfæri, kveikjarar, skeifur, járningatæki, hreinsiefni fyrir bíla og vinnustaði. K. Richter hf. er nú til húsa í eigin húsnæði að Smiðsbúð 5 í Garðabæ. Hjá fyrirtækinu starfa 16 starfsmenn.